velkomin:) Begga

Tuesday, May 11, 2004

halló halló,

það er mikið búið að gerast síðan ég skrifaði hérna seinast!!!! mjög mikið.. en í dag þá komumst við að því að við lentum í 2. sæti á Reykjavíkurmótinu en það munaði alveg rosalega litlu að það hefði getað verið 1. sæti!!!!!!! :@ :@ bara allt útaf þessum Víkings leik sem enginn vill minnast á en Óli er alltaf að tala um... :(

í dag þá fór ég bara í skólann klukkan 13 því það eru samræmdupróf og fór í íþróttir sem var útihlaup og ég náði eitthvað 11. min sem er mjög gott. svo fórum ég og Lára að keppa við Andra og Ara í fótolta og unnum þá rétt svo 10-9 en ein af okkur var á sokkalistunum sem er mjög erfitt..

áðan var ég að horfa á í sjónvarpinu Valur-Haukar og ég var geðveikt pirruð þeir vöðuðu bara yfir okkur helvítis bananarnir á afmælisdegi Vals!!!!!! ohhhh... þeir hættu eiginlega bara!!! þeir áttu að vera ákveðnir og trúa á sig en svona fór þetta bara..

núna er ég bara í nýju tölvunni minni að chilla og það er mjög skemmtilegt.. sjáumst seinna bless bless

Begga#11




Wednesday, April 14, 2004

hæhæ er í skólanum, þegar ég er búin í skólanum þá ætla ég líklega að fara að laga þessa síðu ef ég nenni ekki að fara útí fótbolta!!

ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá skulið þið bara skrifa í comments ;) hehe

ég og Lára erum í spassakasti hérna :):)

mjög gaman.. en á eftir er æfing klukkan 5 og vona að það verður bara gaman eins og í gær!! ;) svo vona ég líka svo innilega að við verðum á grasinu :$ ég held að það séu allir sammála!!! jáms..
en í gær þá ætlaði ég út með Láru og Örnu í ísbúðina að kaupa ís og svona tala saman og chilla, en svo var mér svo illt í fótunum að ég gat ekki komið :( eða ég gat ekki labbað, þannig að þær tvær fóru bara og ég vona að þær skemmtu sér

verð að fara bæbæ ... ;) laga þessa síðu bráðlega!!



Saturday, April 10, 2004

já góðann daginn!!

Rúnar er grátandi, afmælisveisla bráðlega sem er bara fínt :) gaf Rúnari afmælisgjöf sem var BUBBI BYGGIR 5 yes!! hehe!! en er upptekin

bæbæ



Tuesday, April 06, 2004

rosalega er ég geggt duglega að blogga ;)

er ekki bara að nenna þessu, því maður nennir ekkert að vera að hanga í tölvunni í páskafríi og líka þegar það er svona æðislega gott veður úti ;) hehe

nenni ekki að skrifa neitt geri það kannski seinna lofa.. svo ætla ég að fara að breyta þessari síðu eitthvað marr ... hörmuleg síða!!



Thursday, March 25, 2004

halló

Friday, March 12, 2004

góðann dag allir hér og þar í geimnum og á jörðinni ;)

jájá ég var að koma úr stuttum skóladag:)

lalalalalala ég elska Föstudaga ;);) bezzzztu dagar í heimi :D

en ég er ekki alveg að fíla þessi comments á síðunni minni :S en jæja já... það sem við Begga erum að reyna að gera er að laga þessa síðu aðeins til jább endilega kíkið ;););)

Árshátíð var á Fimmtudaginn.. svosem alltí lagi en ég var bara að deyja úr þreytu allann tímann :$ hef ekki guðmund um það en allavega STUÐMENN spiluðu og þeir eru alveg fínir... ekki bezzta hljómsveit sem ég veit um en alveg ágæt sko...

til hamingju allir sem unnu eitthvað á árshátíðinni ... þið eruð hugrökk því ég mundi aldrei þora að standa þarna uppá sviði hehehehehe...

Herra 8undi: Bjarki Pje
Ungfrú 8undi: Eva
Herra 9undi: Tori
Ungfrú 9undi: Edda Davíðs
Herra 10undi: Toggi
Ungfrú 10undi: Vigga
Herra Hagaskóli: Úlfur
Ungfrú Hagaskóli: Andrea Karls
Hár Hagaskóla: Skúli Jóns
Dúlla Hagaskóla: Þossi
Bjartasta vonin: Alli Briem
Bros Hagaskóla: Dóra Sif

jább þetta eru allir og svo sætasti kennarinn var hann Snorri (kennarinn minn:S)

svo á eftir verður farið á æfingu niðrí Egilshöll og klukkan 8 verður leikhús á leikrit MR sem systir mín leikur og kærastinn hennar (aðalhlutverk!) hlakka til að sjá það....

á morgun er ekkert sérstakt plan nema að vakna heldur snemma en seint og fara í kringluna með mömmu að kaupa fermingarfötin.... ;) búin að finna eitthvað en ekki samt buxur.... nóbb.. svo í leiðinni verður líklega keypt tvenna skó... ;) ferminga og strigaskó ;) jább jibbí ;);)

ÉG FERMIST 1 MAÍ jibbí.. hehe ;)

en nenni ekki að vera að skrifa hérna meira segi bara góða helgi og lifið sæl!!

höfundur.. Bergþóra Baldurzdóttir, Akranesi, 674 Júpíter.


Tuesday, March 09, 2004

halló halló

er búin að vera veik í dag þannig að ég fór ekki í knattspyrnuskólann en allavega þá eru Thelma, Magga og Anna Sóley komnar í fífuna þannig að það verður stuuuuuuð ;)
ekkert smá maður ;)

en er núna að reyna að selja á fullu tjöruhreinsi en það gengur ekkert voða vel því ég er ekki búin að selja neinn.. hann sem hefur áhuga að þrífa bílinn sinn sjálfur endilega sendiði á valsari11@hotmail.com eða skrifiði bara í coments.. hehe....;) en þeir sem kaupa þetta fá 5 lítra brúsa á aðeins 2500 krónur ;) og leiðbeiningar fylgja!!!! bara allur pakkinn.. endilega styrkið mig fyrir ferð til Svíþjóðar :):):):) JIBBÍ gaman gaman..

en hef eiginlega ekkert að segja sko.. þetta er allt hérna í bulli.. það er nefnilega ekki það skemmtilegasta sem ég geri að blogga sko .... en það er allt í lagi svosem.

en sjáumst bæbæbæbæbæb ;)



This page is powered by Blogger. Isn't yours?